Velkomin í Pilates Port Klassískt boutique Pilates stúdíó í hjarta Reykjavíkur þar sem lögð er áhersla á að kenna klassískt Pilates eins og þróað var af frumkvöðlinum Joseph Pilates.
Allir kennarar Pilates Port eru með klassísk kennsluréttindi.
Pilates grunnnámskeið
í boði eru grunnnámskeið, strákanámskeið, mömmupilates, 60+ framhaldsnámskeið o.fl. Námskeiðin eru kennd 2x í viku. Alltaf hægt að skrá sig á biðlista eða senda okkur póst varðandi upplýsingar um næstu námskeið.
info@pilatesport.is.
Pilates áskriftahópar
Pilates Port býður upp á haust-og voráskriftir þar sem fastir áskriftahópar æfa tvisvar í viku á sama tíma og sömu dögum út önnina. Haustáskrift í Pilates gildir frá lok ágúst til um miðjan desember og voráskrift gildir frá byrjun janúar til lok maí.
Einka- og dúótímar
Einka- og dúótímar eru sérhannaðir að þörfum og getu hvers iðkanda. Til að kaupa og bóka einka- og dúótíma vinsamlegast hafið samband á info@pilatesport.is.
Ávinningur af Pilates
Þegar Pilates er stundað markvisst upplifa iðkendur aukna orku, einbeitingu og heilt yfir aukna vellíðan á líkama og sál.
Ávinningur af Pilates:
- Styrkir djúpvöðva líkamans
- Eykur styrk, liðleika og jafnvægi
- Bætir líkamsstöðuna
- Betri líðan í baki, öxlum, mjöðmum og liðum
- Bætir andlega heilsu
- Bætir einbeitingu
- Aukinn liðleiki í hryggjasúlunni
Pilates Port er búið vönduðum og sérhönnuðum pílatestækjum. Einnig er Pilates Port umboðsaðili framleiðanda tækjanna, Pilates Scandinavia, á Íslandi. Nánari upplýsingar og kaup á tækjum fæst á info@pilatesport.is.
Þér líður betur eftir tíu lotur, lítur betur út eftir tuttugu lotur og færð alveg nýjan líkama eftir þrjátíu lotur.